Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði erlendan ferðamann á 170 km/klst hraða við Kirkjubæjarklaustur í dag.
Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og þarf að greiða háa sekt.
mbl.is greinir frá þessu.
Þá stöðvaði lögreglan ökumann í uppsveitum Árnessýslu í dag sá ók farþegum í atvinnuskyni án allra tilskilinna leyfa. Hann hafði hvorki leigubílaréttindi né meirapróf og bifreiðin var ekki skráð sem leigubifreið.