Talsvert minni afli í Veiðivötnum

Stangveiði í Veiðivötnum lauk þann 24. ágúst sl. en nú er netaveiðitíminn tekinn við.

Alls veiddust 21.240 fiskar á stangveiðitímanum. Þetta er talsvert minni afli en undanfarin þrjú ár, en svipað og sumarið 2007. Sumarið 2011 telst vera fimmta besta stangveiðiár í Veiðivötnum frá upphafi.

Á vef Veiðivatna segja kunnugir að líklega megi kenna kuldatíð framan af sumri um lægri aflatölur að þessu sinni, en undanfarin sumur hafa verið sérlega hagstæð lífríkinu í Veiðivötnum og aflabrögð eftir því.

Eins og oft áður var mestur afli úr Litlasjó. Þar veiddust 6.016 fiskar. Næst á eftir var Stóra Fossvatn með 2.467 fiska. Bæði þessi vötn eru hrein urriðavötn.

Langavatn var í þriðja sæti með 2.392 fiska, mest bleikjur. Yfir 1.000 fiskar fengust úr Snjóölduvatni, Kvíslarvatni, Nýjavatni og í Hraunvötnum.

Meðalþyngd allra fiska úr Veiðivötnum var 1,79 pd sem er mjög gott. Fara þarf mörg ár aftur í tímann til að finna álíka meðalþyngd.

Fyrri greinUppskeruhátíð í Hruna-mannahreppi 2011
Næsta greinHestur sló fjallmann