Örnefnanefnd telur að núverandi heiti sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahreppur sé heppilegasta nafngiftin á sveitarfélagið. Nefndin hefur kveðið upp úrskurð um nöfnin átta sem stungið hefur verið uppá á sveitarfélagið.
Tillögurnar voru Eystribyggð, Eystrihreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Vörðubyggð, Þjórsárbakkar, Þjórsárbyggð, Þjórsárhreppur og Þjórsársveit.
Í sjónarmiðum Örnefnanefndar er getið um seinni nafnliði sveitarfélaga. Hrepps- og sveitar endingar eiga við um sveitarfélag þar sem byggð er að mestu eða öllu leyti í dreifbýli. Endingin byggð á betur við þar sem byggð er blönduð af dreifbýli og þéttbýli.
Nefndin hafnar því að nafnið Vörðubyggð verði notað. Rökin eru þau að nafngiftin sé ekki í samræmi við byggðamynstur sveitarfélagsins og íslenskar orðmyndunarreglur. Auk þess sé það kennileti sem vísar til Vörðufells sem er að hluta utan sveitarfélagsins.
Þær tillögur þar sem „Eystri“ er í fyrri lið, telur nefndin ekki vera heppilegar. Það geti gefið til kynna vísun til Austurlands eða Austfjarða. Að auki sé þar vísað til gamallar óformlegrar nafngiftar á eingöngu öðrum gömlu hreppanna, Gnúpverjahrepps.
Þau nöfn sem tengjast Þjórsá gefa skýrt til kynna að mati nefndarinnar að Þjórsá sé eitt af stórum einkennum svæðisins sem sveitarfélagið nær yfir. En bent er á að fleiri sveitarfélög liggi að Þjórsá.
Varðandi nafnið „Skeiða- og Gnúpverjahreppur“ segir nefndin að nafnið eigi fornar rætur og að það samræmist íslensku máli fullkomlega. Uppfylli það auk þess kröfur um vernd örnefna og nafngiftahefða.
Umsögn nefndarinnar verður tekin til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar en kynningarfundur um kosninguna og ferlið í heild verður haldinn í Árnesi mánudaginn 30. nóvember næstkomandi kl 20:30. Stefnt er að kosningu í desember.