Þingvallahringurinn lokaður að næturlagi

Myndin sýnir lokanirnar og framkvæmdasvæðið. 

Nauðsynlegt reynist að loka hjáleið á Þingvöllum um Vallaveg og stærri hluta Þingvallavegar að kvöldi og nóttu til í nokkra daga frá og með 6. ágúst næstkomandi. Þá verður ekki hægt að komast Þingvallahringinn frá kl 21:00 til kl. 8:00.

Nú er farið að síga á seinni hluta framkvæmdanna við Þingvallaveg. Framkvæmdir hafa gengið vel og verkið er heldur á undan áætlun. Búast má við að nýr Þingvallavegur verði opnaður snemma í september næstkomandi.

Þó er eftir að endurgera u.þ.b. 500 m kafla sem er utan núverandi vinnusvæðis. Nauðsynlegt er að loka fyrir umferð um Þingvelli og til þess að valda sem minnstum truflunum á umferð verður unnið að næturlagi, milli kl. 21:00 og 8:00. Vegurinn verður opinn að degi til.

Fyrsta lokun verður þriðjudaginn 6. ágúst kl. 21:00. Lokanir verða fjarlægðar kl. 8:00 daginn eftir og þetta síðan endurtekið þar til vinnu við kaflann er lokið. Búist er við að þessi vinna taki um það bil viku.

Vestanmegin verður Vallavegi lokað við Silfru (en hægt verður að komast að vatninu). Austanmegin verður Lyngdalsheiðarvegi lokað við Þingvallaveg.

Vakin er athygli á að á meðan á þessu stendur er ekki er hægt að komast Þingvallahringinn að næturlagi.

Fyrri greinEldur í húsi við Smáratún
Næsta grein„Í nafni þínu“ í Strandarkirkju