Suðurlandsvegi hefur verið lokað austan við Kirkjubæjarklaustur vegna alvarlegs umferðarslyss við Gígjukvísl. Neyðarlínan fékk tilkynningu um slysið kl. 14:21.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að um harðan árekstur tveggja bifreiða hafi verið að ræða. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi að hlúa að slösuðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig á leið á vettvang.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar sem stendur en vegurinn verður lokaður um óákveðinn tíma.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í öðru útkalli á svipuðum slóðum skömmu áður þar sem hestamaður féll af baki og missti meðvitund. Þyrlan lenti á þjóðveginum og var lokað fyrir umferð á meðan.
Fréttin verður uppfærð