Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra voru veitt á Kjötsúpuhátíðinni um síðustu helgi. Það er skipulags- og umhverfisnefnd sem að velur úr innsendum tillögum og voru viðurkenningar veittar í þremur flokkum.
Snyrtilegasti garðurinn í sveitarfélaginu er Litlagerði 2a en þar búa þau Birgir Óskarsson og Pálína Guðbrandsdóttir
Snyrtilegasta býlið í sveitarfélaginu er Ytri Skógar en þar eru ábúendur í félagsbúi þau Sigurður Sigurjónsson og Kristín Þorsteinsdóttir annars vegar og hins vegar Ingimundur Vilhjálmsson og Margrét H. Jónsdóttir.
Snyrtilegasta fyrirtækið í sveitarfélaginu er Eldstó Art Café en eigendur Eldstó eru þau G. Helga Ingadóttir og Þór Sveinsson.
Tómas Birgir Magnússon, oddviti, afhenti verðlaunahöfunum viðurkenningarnar á Kjötsúpuhátíðinni.