Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þrjá vélhjólamenn á Landspítalann eftir tvö vélhjólaslys á Suðurlandi í dag.
Fyrra slysið varð um klukkan 15 við Búðarháls og það síðara í Hrunamannahreppi kl. 15:45. Þyrlan var á æfingu í nágrenni við fyrri slysstaðinn og var fljót á staðinn en þar voru tveir slasaðir.
Um 45 mínútum síðar barst tilkynning um annað slys í Hrunamannahreppi þar sem einn var slasaður og lenti þyrlan þar á leið frá Búðarhálsi og flutti alla þrjá á Landspítalann.
Morgunblaðið greinir frá þessu en ekki fást upplýsingar um líðan þeirra slösuðu.