Lögreglan á Suðurlandi kærði 65 ökumenn fyrir að aka of hratt í síðustu viku. Tveir ökumenn eru grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna eða lyfja og aðrir tveir undir áhrifum áfengis.
Fimm ökumönnum var gert að færa ökutæki sitt á næstu skoðunarstöð þar sem lögregla taldi ástandi bílanna áfátt, meðal annars þar sem ökuritar atvinnutækja höfðu ekki verið kvarðaðir.
Þrír voru kærðir fyrir að hafa ekki kveikt á lögboðnum ljósum og aðrir þrír fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur.
Fjórtán umferðarslys voru tilkynnt í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla.