Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd Hveragerðisbæjar efndi til jólaskreytingarkeppni á meðal bæjarbúa fyrr í mánuðinum.
Viku fyrir jól fór svo dómnefnd í leiðangur um bæinn og skoðaði skreytingar bæjarbúa. Að mati nefndarinnar var greinilegt að margir íbúar lögðu metnað í jólaskreytingar á híbýlum sínum.
Viðurkenningar voru svo tilkynntar á jólatónleikunum Hvergerðingar streyma inn jólin þann 18. desember.
Best skreytta húsið er Varmahlíð 15, mest skreytta húsið er Réttarheiði 17 og mest kosna húsið í kosningu bæjarbúa var Dalsbrún 5. Íbúar vinningshúsanna fá gjafabréf í verðlaun.