Árið 2015 hættu starfsmenn Hótel Rangár að taka við þjórfé en gestum var þess í stað boðið að láta af hendi peninga sem myndu renna til björgunarsveitanna á svæðinu.
Síðan þá hefur Hótel Rangá reglulega styrkt Flugbjörgunarsveitina á Hellu og Björgunarsveitina Dagrenningu á Hvolsvelli.
Í samráði við björgunarsveitirnar var ákveðið að í ár myndi styrkurinn koma til kaupa á þurrgöllum sem munu koma að góðum notum við björgunarstörf í vatni.
Gallarnir voru afhentir síðastliðinn föstudag, en Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, vildi þó alls ekki afhenda þá án þess að ganga úr skugga um að þeir væru fyllilega vatnsheldir. Hann tók því að sér að prófa galla í Eystri-Rangá og stóðust bæði Friðrik og gallinn það próf með glans.