Flest útköll flugdeildar Landhelgisgæslunnar árið 2023 voru vegna útkalla á Suðurlandi. Þetta kemur fram í samantekt á heimasíðu Landhelgisgæslunnar.
Flugdeild Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2023. Alls var flugdeildin kölluð 314 sinnum út, bæði á þyrlum og flugvél sem er fimmtán útköllum meira en árið 2022.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út 303 sinnum og áhöfnin á TF-SIF í 11 skipti. 115 útköll voru á fyrsta forgangi, 136 á öðrum forgangi, 51 útkall var á þriðja og 12 á fjórða.
Rúmlega helmingur allra útkalla flugdeildar Landhelgisgæslunnar í fyrra voru vegna sjúkraflutninga á landi eða á sjó eða 161 útkall.
Fjöldi sjúklinga var samtals 183. Flest útköllin voru á Suðurlandi en þónokkur fjöldi var einnig á Suðurnesjum vegna jarðhræringa á Reykjanesi.