Suðurstrandarvegur var vígður formlega í dag en Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, og Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri klipptu á borða við vígsluna.
Undirbúningur að lagningu Suðurstrandarvegar hófst hjá Vegagerðinni á árinu 1996, þegar vegamálastjóri skipaði hönnunarhóp sem skildi hafa umsjón með hönnun vegarins.
Vegurinn er 57 km langur frá Grindavík í vestri að Þorlákshöfn í austri. Liggur hann um þrjú sveitarfélög en þau eru Grindavík, Hafnarfjarðarbær og sveitarfélagið Ölfus.
Áætlaður heildarkostnaður vegna verksins er rétt tæpir 3 milljarðar kr. uppreiknað til verðlags í dag.
Markmið framkvæmdarinnar er að byggja upp varanlega og örugga vegatengingu milli Suðurlands og Suðurnesja til hagsbóta og öryggis fyrir atvinnulíf og íbúa á svæðunum. Auk þess að auka umferðaröryggi með vegi sem uppfyllir nútíma veghönnunarreglur og leggja bundið slitlag á veginn.
Aðgengi ferðafólks mun verða stórbætt að svæði með stórbrotna náttúrufegurð og mikið útivistargildi. Auk þess gefur nýr Suðurstrandarvegur fyrirtækjum í ferðaþjónustu möguleika á að bjóða upp á áhugaverða tengingu og hringferðir frá Keflavíkurflugvelli að mikið sóttum ferðamannastöðum á Suðurlandi.