Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú heimilisofbeldismál sem kom upp í síðustu viku og var það í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu.
Í dagbók lögreglunnar kemur fram að málið sé til rannsóknar og úrvinnslu í samráði við barnaverndaryfirvöld í heimahéraði viðkomandi fjölskyldu.