Timbur sótt í Skarfanes í fyrsta sinn

Frá því í október hefur Skógrækt ríkisins unnið að grisjun í Skarfanesi á Landi. Alls komu 80 rúmmetrar af timbri út þessari fyrstu grisjun á svæðinu, en Skógræktin eignaðist landið árið 1940.

Þegar landið var keypt var það að mestu uppblásið utan að örfáar skógartorfur vaxnar lágu kjarri voru eftir. Hefur birki og víðikjarr í dag vaxið upp og sáð sér út yfir hundruðir hektara.

Gróðursettur skógur í Skarfanesi er mun umfangsminni en hefur vaxið vel á síðustu árum og var kominn tími til að grisja elstu reitina. Frá því í október hefur verið unnið að grisjun í furureitum sem gróðursettir voru árið 1965 en þar voru þrjú kvæmi af stafafuru grisjuð en auk þess var grisjað rauðgreni sem gróðursett var árin 1952 og 1953.

Síðustu daga hefur timbrið verið flutt úr Skarfanesi við nokkuð erfiðar aðstæður, en skaflar og ís er á veginum úr Skarfanesi að Landvegi. Mest af timbrinu verður selt til Elkem en sverustu bolirnir, auk spíruefnis fyrir fiskihjalla var flokkað frá og verður selt sérstaklega.

Á vef Skógræktarinnar keur fram að heilmikinn lærdóm megi draga af starfinu í Skarfanesi og má nýta það starf sem fordæmi að því sem hægt er að gera á svipuðu landi víða um land. Þar var hafist handa við beitarfriðun og uppgræðslu lands sem var að verða örfoka vegna jarðvegseyðingar fyrir um 70 árum. Í kjölfarið voru gróðursett nytjatré og í dag eru farnar að koma timburafurðir. Þess má einnig geta að á árum áður var tekinn mikill fjöldi jólatrjáa úr þeim reitum sem grisjaðir voru nú.

Vefur Skógræktarinnar

Fyrri greinVill að Selfyssingar skoði loftborið hús
Næsta greinMarín valin þriðja árið í röð