Tíu einstaklingar eru í einangrun á Suðurlandi í dag, vegna COVID-19 og þrettán í sóttkví. Staðfestum smitum á Suðurlandi hefur fjölgað um eitt síðan fyrir helgi.
Af þessum tíu eru fimm ennþá í einangrun í Mýrdalnum. Þrjú önnur smit dreifast um Suðurland og tveir eru í einangrun í Vestmannaeyjum. Á Selfossi eru fimm í sóttkví. Þetta kemur fram í daglegum tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Þá eru 103 einstaklingur í skimunarsóttkví á Suðurlandi eftir að hafa farið í skimun á landamærunum.
Í gær greindust 27 kórónuveirusmit innanlands og voru tveir utan sóttkvíar en þetta kemur fram á covid.is.