Fræðslunet Suðurlands útskrifaði tólf nemendur úr námi í Grunnmenntaskóla á Hvolsvelli sl. þriðjudag. Námið hefur staðið yfir frá því í september og er 300 stunda langt.
Fjórtán nemendur hófu nám í haust en þetta er í fyrsta sinn sem Grunnmenntaskóli er haldinn í Rangárvallasýslu. Ekki var annað að heyra á þátttakendum en að þeir væru ánægðir með að hafa fengið tækifæri til að rifja upp og læra ýmislegt nýtt. Helstu kennslugreinar eru íslenska, stærðfræði, enska, upplýsingatækni og sjálfstyrking.
Fyrirhugað er að eftir áramótin hefjist kennsla í almennum bóklegum greinum, þ.e. íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku á námsleiðinni Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum.