Tómas Ellert segir sig úr Miðflokknum

Tómas Ellert Tómasson. Ljósmynd/Aðsend

Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg, hefur sagt sig úr Miðflokknum en hann var einn af stofnfélögum hans árið 2017.

„Á miðnætti varð ljóst að í fyrsta sinni geng ég nú óflokksbundinn til Alþingiskosninga. Hamingjusamur, glaður og frjáls,“ sagði Tómas Ellert í Facebookfærslu í morgun.

Tómas Ellert hafði gefið kost á sér í oddvitasæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hann dró það framboð til baka og í gærkvöldi varð ljóst að Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, verður í 1. sæti listans.

„Ég vil bara þakka Miðflokknum og fólkinu sem þar starfar fyrir samfylgdina síðastliðin 7 ár og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni,“ sagði Tómas Ellert í samtali við sunnlenska.is.

„Enginn veit sína ævi fyrr en öll er í þessum bransa. Ég er ekki hættur að starfa í pólitík, þetta er veira sem tók bólfestu í mér á barnsaldri og mér þykir harla ólíklegt að hún sé á förum í bráð.“

Tómas Ellert var bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg frá 2018 til 2022. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og var meðal annars kosningastjóri á landsvísu í Alþingiskosningunum 2021. Hann átti sæti í málefnanefnd flokksins og var varaformaður kjördæmafélagsins í Suðurkjördæmi.

Fyrri greinMjög skiljanleg umræða um EES
Næsta greinBætt úrgangsstjórnun Kölku í samstarfi við Pure North