Tómstundastyrkurinn hækkaður í 75 þúsund krónur

Við Háafoss í Þjórsárdal. Ljósmynd/skeidgnup.is

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á síðasta fundi sínum fjárhagsáætlun ársins 2019 og áætlun áranna 2020 til 2022.

Gjaldskrár og álagningahlutföll ásamt framkvæmdaáætlun komandi árs voru einnig lögð fram og samþykkt.

Meðal þeirra atriða sem felast í fjárhagsáætlun og gjaldskrám er hækkun íþrótta- og tómstundastyrks úr 60.000 kr í 75.000 kr fyrir hvern einstakling.

Þá hækka tekjuviðmið afslátta á fasteignagjöldum umtalsvert og verða fjárhæðirnar tæpar 3,4 milljónir fyrir einstakling og tæpar 5,1 milljón til 100% afsláttar.

Álagningarhlutfall A flokks fasteignagjalda, sem á við um íbúðarhúsnæði, lækkar úr 0,5% í 0,4% af fasteignamati.

Gjöld fyrir sorpþjónustu hækka um 5% en gjaldskrár verða að öðru leyti óbreyttar.

Áætlað er að rekstur samstæðunnar skili 67,4 milljón króna hagnaði en samþykkt var að fjárfesta fyrir 104,5 milljónir króna.

Samhliða var fjárhagsáætlun 2020-2020 í grófum aðalatriðum lögð fram og samþykkt.

Fyrri greinÁrni Steinn í úrvalsliðinu
Næsta greinON hraðhleðsla á Flúðum bætir þjónustuna við ferðamenn