Milli klukkan átta og tíu á miðvikudagsmorgun í síðustu viku voru skemmdir unnar á bíl sem var í bílastæði við FSu á Selfossi. Bíllinn er af gerðinni Ford Mondeo grá að lit.
Sýnilega hafði verið stigið upp á vélarhlíf bílsins og traðkað á henni.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um verknaðinn eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444 20110 eða suðurland@logreglan.is.