Rangárþing ytra og verktakafyrirtækið Tré og straumur ehf í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa undirritað verksamning vegna viðbyggingar sem rísa á við íþróttahúsið á Hellu.
Um er að ræða tvílyft hús úr límtré, klætt steinullareiningum með einhalla þaki við núverandi íþróttahús. Á neðri hæðinni verður áhaldageymsla en á þeirri efri verður líkamsræktaraðstaða sem tengist núverandi íþróttamiðstöð um göngusvalir í íþróttahúsi.
Verkáætlun gerir ráð fyrir að hafist verði handa í byrjun júní og að húsið verði fokhelt í haust og áhaldageymslan verði tilbúin til notkunar 15. desember næstkomandi. Verklok eru áætluð þann 1. júní á næsta ári.
Verksamningurinn hljóðar upp á 123 milljónir króna en hann var undirritaður í Íþróttahúsinu á Hellu. Þessi framkvæmd mun bæta aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar til mikilla muna og eykur enn á fjölbreytta nýtingarmöguleika íþróttahússins.