TRS á Selfossi er eitt þeirra fyrirtækja sem fékk viðurkenningu sem Fyrirtæki ársins 2019 í könnun Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Viðurkenningarnar voru afhentar í gær.
Könnunin er framkvæmd af Gallup og nær til 34 þúsund starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Starfsmenn voru beðnir að leggja mat á níu lykilþætti í starfsumhverfinu, meðal annars stjórnun, starfsanda, jafnrétti og sjálfstæði í starfi.
TRS var eitt af fimm efstu fyrirtækjunum í flokki meðalstórra fyrirtækja og hlaut einkunnina 4,58. TRS er nýtt fyrirtæki á lista yfir Fyrirtæki ársins en heildareinkunn fyrirtækisins hækkaði um 0,15 á milli ára. TRS skorar hátt í ánægju og stolti starfsmanna, jafnrétti, ímynd fyrirtækis og starfsanda.