Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur samið við Tölvu og rafeindaþjónustu Suðurlands um hýsingu og rekstur á tölvukerfi sveitarfélagsins.
TRS tekur að sér hýsa upplýsingakerfi Bláskógabyggðar í vélasal sýnum á Selfossi auk þess að sinna reglubundnu viðhaldi á tölvubúnaði allra stofnanna sveitarfélagsins.
Bláskógabyggð fetar þannig í fótspor fjölda fyrirtækja og stofnanna sem falið hafa TRS rekstur tölvukerfa sinna. Markmið samnings er að lækka kostnað við rekstur tölvukerfis Bláskógabyggðar og gera hann sýnilegri.