Húsleit var gerð í íbúðarhúsi á Selfossi á föstudag hjá mönnum sem grunaðir voru um að hafa í fórum sínum fíkniefni. Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni.
Vegna stærðar hússins og þess að hugsanlega væru margir í húsinu var leitað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Fernt var handtekið, þrír karlar og ein kona. Öll voru færð í lögreglustöð og yfirheyrð.
Í húsinu fundust neysluskammtur af kannabis. Einnig fundust 26 lítrar af gambra. Konan gekkst við gambranum og einn karlinn við kannabisefninu. Fólkið var látið laust að lokinni yfirheyrslum.
Önnur húsleit var framkvæmd um helgina á Selfossi vegna gruns um fíkniefnabrot. Þegar lögreglumenn komu inn í húsið fundu þeir strax kannabislykt leggja frá einu herbergi hússins. Þar fannst kannabisefni. Málið er í rannsókn.