Björgunarsveitir í Rangárvallasýslu leita nú tveggja pilta sem struku frá meðferðarheimilinu að Geldingalæk á Rangárvöllum.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu, Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Björgunarsveit Landeyja eru við leit.
„Leitin er hafin og nú erum við að kortleggja aðgerðir og hvernig við verður brugðist,“ sagði varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli í samtali við mbl.is.