Tveir voru fluttir slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík eftir bílveltu á Skaftártunguvegi síðdegis í dag.
mbl.is greinir frá þessu en tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan fjögur í dag.
Hinir slösuðu voru fluttir með sjúkrabíl til Víkur í Mýrdal þar sem þyrla gæslunnar lenti og tók þá um borð.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar tildrög slyssins en hinir slösuðu munu ekki vera í lífshættu.