Í dag eru tveir einstaklingar í einangrun á Suðurlandi vegna COVID-19 og fimm í sóttkví.
Þeir sem eru í einangrun eru báðir í Vík í Mýrdal og þar er einn í sóttkví. Þetta kemur fram í tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Þá eru 119 manns í sóttkví á Suðurlandi eftir að hafa farið í skimun á landamærunum.
Ekkert COVID-19 smit greindist innanlands í gær en mikið fjölgaði í sóttkví um helgina eftir því sem fram kemur á covid.is.