Björgunarsveitir á Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út á öðrum tímanum í dag eftir að snjóflóð féll í Tindfjöllum.
Mbl.is greinir frá þessu en þar segir að hópur frá björgunarsveitinni Ársæli hafi verið í fjallamennskunámskeiði á svæðinu og lentu tveir björgunarsveitarmenn í flóðinu en hvorugur slasaðist.
Mennirnir náðust fljótt upp og hægt var að snúa við björgunarsveitunum sem kallaðar höfðu verið út.
Á vef Veðurstofunnar segir að hugsanlegt sé að fólk hafi sett flóðið af stað, en það liggur ekki fyrir að svo stöddu. Það hefur verið kalt í vikunni og við þær aðstæður geta myndast veikleikar í snjónum. Það sé því rétt að sýna varúð þegar ferðast er í brattlendi.