Tveir ungir piltar voru fluttir talsvert slasaðir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir að fjórhjól sem þeir voru á valt í Lækjahverfinu á Selfossi í gærkvöldi.
Neyðarlínan fékk tilkynningu um slysið um klukkan 22:30 en fjórhjólið hafði lent utan vegar og oltið.
Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu en rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurlandi.