Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði tvo ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í Árnessýslu í liðinni viku.
Þeir voru frjálsir ferða sinna að lokinni töku blóðsýna.
Höfð voru afskipti af tveimur öðrum ökumönnum í Árnessýslu sem grunaðir eru um ölvun við akstur. Öðrum þeirra hafði orðið það á að reka bifreið sína utan í aðra bifreið og valda á henni tjóni.
Í dagbók lögreglunnar kemur fram að 18 voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu. Einn þeirra var mældur á 149 km/klst hraða á 90 km vegi undir Eyjafjöllum.