Tveir ungir menn voru handteknir af lögreglunni á Selfossi í dag eftir að þeir voru staðnir að verki við veggjakrot á Ölfusárbrú og á upplýsinga- og auglýsingaskilti sem stendur nærri brúnni.
Lögreglunni barst ábending um hverjir hefðu verið að verki og handtók hún mennina sem eru rétt undir tvítugu.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi er um talsvert tjón að ræða sökum þess að upplýsinga- og umferðaskiltið er dýrt. Áætlað er að kostnaður við að setja upp nýtt skilti sé á bilinu 100-200 þúsund krónur.
Eftir því sem mbl.is greinir frá gefst mönnunum kostur á að gera sátt í málinu og greiða sekt. Öðrum kosti fer málið fyrir dóm.