Stuttri sögu umhleðslustöðvar Sorpstöðvar Suðurlands á gámasvæðinu í Sandvíkurhreppi lýkur um næstu mánaðarmót þegar henni verður lokað, réttu ári eftir að hún var opnuð.
Ástæðan er gegnum gangandi taprekstur á þeim tíma sem hún hefur verið starfrækt. „Þessi stöð er ekki að skila þeim ávinningi sem menn gáfu sér í upphafi,“ segir Gunnar Egilsson, stjórnarformaður Sorpstöðvar Suðurlands í samtali við Sunnlenska.
Hann segir málið hreina hörmungarsögu og kostnaðinn sem hlotist hefur af byggingu stöðvarinnar og taprekstrinum að líkindum yfir 50 milljónir króna.
Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu PANTA ÁSKRIFT