Í dag og næstu daga verður unnið við að setja niður búfjárræsi á Laugarvatnsvegi við bæinn Miðhús. Umferð verður stýrt um hjáleið meðan á framkvæmdum stendur.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.
Umferðartafir á Eyrarbakkavegi
Vegna vinnu við Óseyrarbrú geta orðið tafir á Eyrarbakkavegi í dag, fimmtudaginn 21. september, frá kl 10:00 og fram eftir degi.