Vegna fundar forsætisráðherra Norðurlandanna verða verulegar takmarkanir á umferð ökutækja og hjólandi vegfarenda um Þingvelli næstkomandi mánudag, þann 28. október.
Þá verður öll umferð gangandi vegfarenda bönnuð.
Fundurinn er haldinn í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem er haldið í sömu viku.
Heimilt verður að aka til austurs um Þingvallaveg en lokað verður fyrir umferð til vesturs frá gatnamótum Þingvallavegar/Lyngdalsheiðar að gatnamótum Þingvallavegar/Grafningsvegar.
Allri umferð til vesturs um Lyngdalsheiði frá Laugarvatni verður beint til suðurs við áðurnefnd gatnamót og niður á Biskupstungnabraut.
Þjónustumiðstöð á Leirum verður opin en Vallavegur frá þjónustumiðstöð verður lokaður. Öll umferð um Þinghelgi verður óheimil, auk þess sem aðkoma að Haki og Silfru verða lokuð. Lokanir taka gildi kl. 7:00 mánudaginn 28. október og gilda til miðnættis.