Tveir voru fluttir á sjúkrahús á Selfossi eftir umferðarslys á Fjallabaksleið nyrðri í nágrenni við Ljótapoll í hádeginu í dag.
mbl.is greinir frá þessu og hefur eftir Davíð Má Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, að björgunarsveitir hafi verið kallaðar út til að flytja hina slösuðu til móts við sjúkrabíl.
Viðbragðsaðilar af Suðurlandi ásamt björgunarsveitum á hálendisvakt Landsbjargar í Landmannalaugum voru kallaðir á vettvang. Þeir slösuðu voru komnir um borð í sjúkrabíl um klukkan 14.