Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu vatnasviðs Markarfljóts: 22 Markarfljótsvirkjun A og 23 Markarfljótsvirkjun B á grundvelli flokkunar svæðisins í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.
Lögð er fram tillaga að auglýsingu um friðlýsingu svæðisins og kort þar sem tillaga að mörkum svæðisins er dregin upp.
Lagt er til að verndarsvæði vegna Markarfljótsvirkjunar B sé vatnasvið Markarfljóts ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Markarfljótsvirkjunar B og meginfarvegur Markarfljóts þar fyrir neðan til sjávar, 500 m út frá miðlínu til beggja handa nema þar sem farvegurinn er víðari en 1.000 m, þar sé miðað við belti sem nær 100 m út fyrir heildarbreidd farvegarins til beggja handa. Fyrirhuguð Markarfljótsvirkjun A er innan vatnasviðs Markarfljótsvirkjunar B og mörk svæðisins fylgi jökuljaðri.
Frestur til að skila athugasemdum er til og með 23. janúar 2019 en nánari upplýsingar um friðlýsinguna má sjá hér.
Að kynningartíma loknum tekur Umhverfisstofnun saman umsögn um framkomnar athugasemdir við tillöguna og vísar tillögu að friðlýsingarskilmálum til ráðherra.