Lögreglan stöðvaði tvo ökumenn á Suðurlandsvegi í síðustu viku. Annar þeirra er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hinn undir áhrifum áfengis.
Á mánudag var ökumaður fólksbifreiðar stöðvaður á Suðurlandsvegi og færður til blóðsýnatöku eftir að hafa svarað jákvætt í öndunarprófi fyrir áfengi. Hann reyndist jafnframt vera að aka sviptur ökurétti.
Kvöldið eftir var annar fólksbíll stöðvaður við venjubundið eftirlit á Suðurlandsvegi og er ökumaðurinn grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.