Sveitarstjórn Rangárþings eystra hyggst leigja tíu íbúðir á Hvolsvelli fyrir íbúa undir Eyjafjöllum sem kjósa að flytja af heimilum sínum á gossvæðinu.
Með þessu vill sveitarstjórn tryggja að fólk hafi aðgang að húsnæði í sveitarfélaginu og geti áfram búið í nágrenni við bújarðir sínar, og er einkanlega litið til fjölskyldufólks sem á börn á skólaaldri.
„Þetta er ákveðin varúðarráðstöfun af okkar hálfu ef ske kynni að ástandið verður áfram svona eins og það er,“ segir Elvar Eyvindarson sveitarstjóri. Íbúðirnar sem um ræðir eru í byggingu en frágangi þeirra verður hraðað eins og mögulegt er þannig að þær verði orðnar íbúðarhæfar fyrir haustið.
Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu. PANTA ÁSKRIFT