Hópur sem stóð fyrir samstöðufundi við Hótel Selfoss til stuðnings við sjúkrahúsin á Suðurlandi hefur nú hrint af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla niðurskurði á fjárlögum 2011.
Á undirskriftarlistunum er skorað á ríkisstjórn og Alþingi að þyrma sjúkrahúsunum á Suðurlandi.
Undirskriftalistar liggja frammi hjá stofnunum og fyrirtækjum á Suðurlandi og er fólk hvatt til að leggja málefninu lið og skrifa nafn sitt á viðkomandi lista. Jafnframt hefur verið opnuð Facebooksíða þar sem fólk er hvatt til að styðja málefnið. Síðan heitir ‘Við styðjum sjúkrahúsin á Suðurlandi’.
Fyrirhugað er að skila undirskriftarlistunum 11. nóvember nk.
Að undirskriftasöfnuninni standa Samband sunnlenskra kvenna, Verkalýðsfélögin á Suðurlandi, Samtök sunnlenskra sveitafélaga, Búnaðarsamband Suðurlands og Atorka, félag atvinnurekanda á Suðurlandi.