Ungarnir að skríða úr eggjunum

Varpið hjá Bykohröfnunum á Selfossi vekur alltaf mikla athygli en eins og sunnlenska.is greindi frá á dögunum voru sex egg komin í laupinn.

Nú eru ungarnir byrjaðir að klekjast úr eggjunum og eru þrír ungar komnir í heiminn og væntanlega þrír aðrir væntanlegir mjög fljótlega.

Þetta er í tíunda skiptið á síðustu ellefu árum sem hrafnar verpa í Byko og hafa ungarnir komist á legg í öll árin, nema árið 2020, þegar þeir drápust allir.

Byko er með vefmyndavél við laupinn sem er sérstaklega skemmtilegt að skoða þessa dagana, á meðan eggin eru að klekjast út og foreldrarnir byrjaðir að mata ungana.

Hægt er að skoða hana hérna.

Fyrri greinStuðlabandið styður knattspyrnuna á Selfossi
Næsta greinSelfoss tók nýliðana í kennslustund