Tvö mál er varða eignaspjöll voru kærð til lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku.
Annað málið varðaði veggjakrot í Hveragerði en þar er talið að unglingar hafi verið á ferðinni og var einn þeirra, 15 ára gamall, staðinn að verki af tjónþola.
Í hinu málinu var um að ræða rúðubrot í bifreið við heimili á Selfossi og liggur ekki fyrir hver hefur verið þar á ferðinni.