Ungmennafélag Íslands flytur hluta starfsemi sinnar á Laugarvatn í sumar og opnar þar Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ næsta haust. Búðirnar verða í íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni.
Ásamt því fá íþrótta- og ungmennafélög víða af landinu tækifæri til að nýta sér aðstöðuna í húsinu.
Fulltrúar Bláskógabyggðar og UMFÍ munu undirrita samning þessa efnis næstkomandi fimmtudag, þann 7. mars klukkan.
Ungmennabúðir í 14 ár
UMFÍ hefur starfrækt Ungmenna- og tómstundabúðir að Laugum í Sælingsdal frá árinu 2005 fyrir nemendur 9. bekkjar grunnskóla. Nemendurnir dvelja í búðunum viku í senn. Þar er lögð áhersla á útiveru og félagsfærni. Aðsóknin hefur aukist á hverju ári og eru 2.100 nemendur úr meira en 50 grunnskólum víða af landinu bókaðir í ungmennabúðunum í vetur og fram á vor. Ekki er gerð ráð fyrir miklum breytingum á fyrirkomulagi búðanna þrátt fyrir flutninginn til Laugarvatns.
Framkvæmdir standa yfir í íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni til að gera hana klára fyrir haustið. Allt er í göngufæri á Laugarvatni en frá íþróttamiðstöðinni eru aðeins nokkur hundruð metrar í íþróttahús og sundlaug og margvíslega aðra þarfa aðstöðu.