Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi samþykkti um helgina framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar.
Ekki urðu breytingar á þremur efstu sætum listans eftir niðurstöðu prófkjörs sem haldið var á dögunum. Páll Magnússon leiðir listann og þar á eftir koma Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason.
Ragnheiður Elín Árnadóttir varð í 4. sæti í prófkjörinu en hún afþakkaði sæti á listanum. Því færðist Unnur Brá Konráðsdóttir upp í 4. sætið og nýjar inn í 5. og 6. sæti koma Kristín Traustadóttir og Hólmfríður Erna Kjartansdóttir, en þær voru ekki í framboði í prófkjöri flokksins.
Listinn er þannig skipaður:
1. sæti – Páll Magnússon fjölmiðlamaður
2. sæti – Ásmundur Friðriksson alþingismaður
3. sæti – Vilhjálmur Árnason alþingismaður
4. sæti – Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður
5. sæti – Kristín Traustadóttir endurskoðandi
6. sæti – Hólmfríður Erna Kjartansdóttir, skrifstofustörf
7. sæti – Ísak Ernir Kristinsson deildarstjóri
8. sæti – Brynjólfur Magnússon lögfræðingur
9. sæti – Lovísa Rósa Bjarnadóttir framkvæmdastjóri
10. sæti – Jarl Sigurgeirsson tónlistarkennari
11. sæti – Laufey Sif Lárusdóttir umhverfisskipulagsfræðingur
12. sæti – Jón Bjarnason bóndi
13. sæti – Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir sjúkraþjálfari
14. sæti – Bjarki V. Guðnason sjúkraflutningamaður
15. sæti – Helga Þórey Rúnarsdóttir leikskólakennari
16. sæti – Þorkell Ingi Sigurðsson framhaldsskólanemi
17. sæti – Ragnheiður Perla Hjaltadóttir hjúkrunarnemi
18. sæti – Alda Agnes Gylfadóttir framkvæmdastjóri
19. sæti – Sandra Ísleifsdóttir húsmóðir
20. sæti – Geir Jón Þórisson, fyrrverandi lögreglumaður