Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, hefur verið kjörin formaður þingmannanefndar Hoyvíkursamningsins.
Stofnað var til þingnefndar Hoyvíkusamningsins árið 2011. Alþingi Íslands og Lögþing Færeyja tilnefna hvort um sig 6 þingmenn í nefndina. Landsþing Grænlands (Inatsisartut) tilnefnir 6 þingmenn sem eru áheyrnafulltrúar í nefndinni með málfrelsi.
Þingmannanefnd Hoyvíkursamningsins er ætlað að fylgjast með þróun og framkvæmd samningsins og setja fram tillögur um breytingar á honum eða umbætur ef ástæða þykir til. Ísland og Færeyjar samþykktu Hoyvíkuramninginn árið 2006. Samningurinn tryggir að samkvæmt meginreglu sé frjálst flæði á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki á milli landanna. Auk þess tryggir samningurinn ýmis konar samstarf landanna, svo sem á sviði menntunar, rannsókna og menningar.
Á fundi nefndarinnar í dag var möguleg þátttaka Grænlands í Hoyvíkursamningnum rædd og var ákveðið að kanna kosti þess og galla frekar. Málið verður tekið upp að nýju á fundi nefndarinnar sem haldin verður í september síðar á þessu ári.