Upplýsingaskiltum komið upp

Fyrr í þessari viku voru sett upp upplýsingaskilti við sex ferðamannastaði í Rangárþingi eystra.

Skiltin voru hönnuð af Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey og textinn á skiltunum var gerður í sameiningu af þeim feðgum, Þorsteini Jónssyni og Brynjólfi Þorsteinssyni.

Staðirnir sem um er að ræða eru Drumbabót, Þorsteinslundur, Gluggafoss, Þórólfsfell, Seljalandsfoss og Paradísarhellir.

Það voru starfsmenn áhaldahúss sveitarfélagsins í samvinnu við Þorstein sem unnu að því að setja upp skiltin.

Fyrri greinHagnaður af rekstri bæjarins eykst
Næsta greinSpá Selfyssingum 7. sæti