Uppskerubrestur og hærri rafmagnsreikningur

Langvarandi dumbungur og vætutíð hefur leikið garðyrkjubændur á Suðurlandi grátt. Útiuppskera er sums staðar hálfum mánuði eða þremur vikum seinna á ferðinni en undanfarin ár.

Visir.is greinir frá þessu.

Garðarnir hjá S.R. grænmeti í Hrunamannahreppi hafa orðið sérlega illa úti. „Það er gífurlega erfitt að komast um garða,“ segir Ragnhildur Þórarinsdóttir sem ræktar gulrætur, rófur og kál

„Það er ekki fyrir nema framhjóladrifna traktora að komast þetta og sums staðar er hreinlega ekki hægt að komast um þannig að þótt maður eigi uppskeru í garði þá er ekki hægt að sækja hana. Svo þjáist þetta af áburðarskorti. Hann hefur skolast af í vætunni þannig að þetta er minna um sig, enda hefur líka verið svo kalt að þetta nær ekkert að vaxa. Það sem ég er að uppskera núna er ekki einu sinni einn þriðji af því sem það var í fyrra,“ segir Ragnhildur.

Á Jörfa á Flúðum er engin jörfagleði en þar er mikil kálræktun. „Uppskerutíminn er stuttur og við myndum vilja að landinn væri nú þegar farinn að japla á íslensku káli en vegna tíðarfarsins hefur hann þurft að gera sér spænskt, hollenskt eða ísraelskt að góðu enn sem komið er,“ segir Friðrik R. Friðriksson hjá Jörfa.

Þeir sem rækta ekki undir berum himni eru ekki hólpnir því rafmagnsreikningurinn verður óþægilega hár í ár vegna mikillar lýsingar. Jóhann Ísleifsson hjá Ræktunarstöðinni í Hveragerði segir að munurinn gæti orðið á bilinu 15 til 20 prósent miðað við sama tíma í fyrra.

Þar á ofan eru kornbændur nú með krosslagða fingur en víðast hvar á Suðurlandi er kornið enn ekki farið að skríða.

„Það er þumalputtareglan í þessum geira að það verði að fara að skríða 20. júlí en ég gef þessu eina viku í viðbót,“ segir Óttar Bragi Þráinsson, bóndi á Miklaholti í Biskupstungum, en hann þreskti um 400 tonn í fyrra.

Ef kornið kemst ekki á skrið freistast margir bændur til að slá það og nota í fóður en einnig er hægt að bíða fram á haust og athuga hvort úr rætist.

„Ég man ekki eftir annarri eins vætutíð,“ segir Óttar Bragi. „Ég varð að kalla á gröfu til að draga traktorinn lausan af hveitiakrinum, þetta hefur ekki komið fyrir svona á miðsumri.“

Fyrri greinUmferðartafir austan við Selfoss
Næsta greinNetaveiðin gengur vel