Uppskeruhátíð við Sunnulæk

8. bekkur í Sunnulækjarskóla á Selfossi efndi til götumarkaðar og myndlistasýningar í gær auk þess að opna kaffihús í tilefni dagsins.

Í vetur hafa nemendur unnið að nýsköpunarverkefni í textíl og smíði þar sem þeir kynnast ferlinu frá hugmynd að framleiðslu vöru.

Verkefninu lauk síðan með uppskeruhátíð þar sem vörurnar voru boðnar til sölu. Markaðurinn tókst einstaklega vel og vakti mikla ánægju nemenda, foreldra og annarra gesta.

Fyrri greinHamar bikarmeistari HSK í körfu
Næsta greinGengið á Gíslholtsfjall í kvöld