Stjórnir kjördæmafélaga Miðflokksins hafa ákveðið aðferð við val á lista fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara 25. september næstkomandi.
Uppstilling verður viðhöfð í öllum kjördæmum og munu uppstillingarnefndir taka til starfa á næstu dögum. Samhliða því verður auglýst eftir framboðum á heimasíðu flokksins.
Miðflokkurinn á tvo þingmenn í Suðurkjördæmi á yfirstandandi kjörtímabili, þá Birgi Þórarinsson, sem leiddi lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum og Karl Gauta Hjaltason, sem leiddi lista Flokks fólksins í kosningunum 2017 en gekk síðan til liðs við Miðflokkinn snemma árs 2019 eftir að hafa verið rekinn úr Flokki fólksins í kjölfar Klaustursmálsins.