Öll landshlutaráð Viðreisnar hafa nú ákveðið að það verði uppstilling á listum Viðreisnar fyrir komandi alþingiskosningar.
Fundað var í Suðurráði í gærkvöldi og varð mikil umræða um hvort fara ætti í uppstillingu eða prófkjör og mikill hugur í ráðunum að stefna næst að prófkjöri, þegar rýmri tími gefst til að raða á lista.
Landshlutaráðin hafa jafnframt kosið sér uppstillinganefndir, sem hefja strax störf. Þau sem áhugasöm eru um að vera á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi geta skráð sig hér. Einnig er hægt að senda tölvupóst á uppstillinganefnd í Suðurkjördæmi á sudur@vidreisn.is.
Óskað er að tilnefningar berist fyrir laugardag, svo að uppstillinganefnd geti lokið störfum í næstu viku. Þá verða listar bornir undir landshlutaráð til samþykktar og stjórn Viðreisnar til staðfestingar.