Urriðadans í Öxará

Ljósmynd/Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður laugardaginn 12. október en þá mun Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um Þingvallaurriðann 19. árið í röð.

Kynningin hefst klukkan kl. 14:00 og fer fram á bökkum Öxarár.
Gönguferðin hefst við bílastæðið þar sem Valhöll (P5) stóð. Síðan er gengið með ánni upp undir Drekkingarhyl þar sem risaurriðar og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra.

Gert er ráð fyrir því að kynningin taki um eina og hálfa klukkustund og fá gestir tækifæri til að sjá risaurriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.

Gestum er bent á að afreinin að bílastæðum við Valhöll (P5) verður lokað þegar að kynning hefst við brúna hjá Öxará.  Bent er á að fjöldi bílastæða er upp við Hak (P1) og það er rétt um 1200 metra ganga að Valhallarstæðinu. Þá eru einnig bílastæði við P2 við Furulundinn.

Fyrri greinNýtt hjúkrunarheimili rís í Hveragerði
Næsta greinFimm Selfyssingar í landsliðinu – Ómar meiddur