FréttirÚtafakstur undir áhrifum 5. september 2011 12:35Ökumaður sem ók bifreið sinni út af Þorlákshafnarvegi við Lambafell síðdegis á laugardag er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.Maðurinn var einn í bílnum og slasaðist ekki. Blóðsýni var tekið frá honum og verður það sent til rannsóknar.